Ég var á aðalfundi Félags bókaútgefenda, þar sem ég borðaði að vísu ekki fisk í aðalrétt en ýmsa fiskrétti í forrétt- en planið er hvort eð er ekki endilega að borða ekkert nema fisk út mánuðinn, heldur að elda ekkert nema fisk. Það gengur ágætlega ennþá en ég á eftir að leysa málið með sprengidaginn. En hér er einföld uppskrift úr tapasþættinum sem ég gerði fyrir MAN í hitteðfyrra. Saltfiskur og kjúklingabaunir, gjörsvovel.
Ég byrjaði á að taka 500 g af vel afvötnuðum saltfiski og skera í bita, 2-3 cm á kant. Svo opnaði ég eina dós af kjúklingabaunum, hellti þeim í sigti og lét renna vel af þeim. Saxaði svo einn lauk smátt og tvo hvítlauksgeira mjög smátt. Hitaði 75 ml af ólífuolíu á pönnu, setti lauk og hvítlauk á hana, kryddaði með pipar og svolitlu salti og lét krauma þar til laukurinn var að byrja að mýkjast. Þá setti égsaltfiskbitana á pönnuna og steikti við góðan hita í 1-2 mínútur, áður en ég sneri þeim.
Svo hellti ég kjúklingabaununum á pönnuna og steiki áfram í 1-2 mínútur. Lækkaði þá hitann, stráði 100 g af spínati yfir fiskinn og baunirnar, lagði lok yfir og lét krauma í um 2 mínútur í viðbót.
Það má bera þetta fram á pönnunni en ég notaði reyndar eldfast leirfat sem ég var búin að hita í ofni (eða á hellu) og hafði gott brauð með.
Steiktur saltfiskur og kjúklingabaunir
500 g saltfiskur, vel afvatnaður
1 dós kjúklingabaunir
1 laukur
2 hvítlauksgeirar
pipar og salt
75 ml ólífuolía
100 g spínat
[…] löngu, hörpudisk, rækjur (forsoðnar, tvisvar, og hráar), túnfisk, ýsu, rauðsprettu, saltfisk og karfa. Og nú er röðin komin að reyktum […]